Úr reglugerð um tjónsuppgjörsfulltrúa
Í reglugerð nr. 424/2008 er að finna reglur um tjónsuppgjörsfulltrúa og starfsemi þeirra.
17. gr.
Hlutverk tjónsuppgjörsfulltrúa og skilyrði fyrir viðurkenningu á þeim.
Tjónsuppgjörsfulltrúar, sem tilnefndir eru á Íslandi til að koma fram fyrir hönd erlendra vátryggingafélaga í samræmi við 11. tölul. 2. mgr. 21. gr. laga um vátryggingastarfsemi nr. 60, 11. maí 1994, skulu afgreiða og taka ákvörðun eða semja um skaðabótakröfur tjónþola, sem búsettir eru á Íslandi, vegna tjónsatviks í öðru aðildarríki Evrópska efnahagssvæðisins (EES) eða Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA) eða í öðru ríki sem er aðili að tilhöguninni um græna kortið, enda verði tjónsatvik rakið til ökutækis sem er vátryggt og að öllu jöfnu staðsett í öðru EES- eða EFTA-ríki.
Skylda samkvæmt 15. gr. um að gera rökstutt tilboð eða svar hvílir ekki á tjónsuppgjörsfulltrúa hafi viðkomandi vátryggingafélag uppfyllt þá skyldu innan þriggja mánaða frestsins.
Tjónsuppgjörsfulltrúi skal vera búsettur á Íslandi og vera fær um að sinna starfi sínu á íslensku. Honum er heimilt að starfa fyrir fleiri en eitt vátryggingafélag.